Innlent

Bílstjórar sjá ekki merkin

Lögreglan í Ólafsvík tók tíu ökumenn fyrir of hraðan akstur, á vegaköflum þar sem vegaframkvæmdir stóðu yfir og búið að lækka hámarkshraða í 50 kílómetra á klukkustund, eftir kvöldmat á fimmtudag. Nokkuð var um að rúður brotnuðu í bílum vegna grjótkasts. Að sögn lögreglu virðist um helmingur ökumanna ekki taka eftir viðvörunarmerkjum um lækkaðan hámarkshraða, bann við framúrakstri og grjótkasti. Lögregla gætti að tveimur vegaköflum með lækkuðum hraða, innst á Ólafsvíkurvegi við hringveginn og svo löngum kafla í grennd við Jónasarlund í Öxnadal.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×