Innlent

Borgin bætir stuld af fötluðum

Borgarráð samþykkti á fundi sínum á fimmtudag að vísa til lögreglu meintum fjárdrætti starfsmanns borgarinnar úr heimilissjóði íbúa á heimili ætluðu fötluðum. Áður en þessi ákvörðun var tekin fór fram rannsókn á málinu af hálfu borgarinnar, að því er fram kemur í tilkynningu velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Á fundi borgarráðs var einnig ákveðið að bæta íbúum heimilisins tjónið sem könnun borgarinnar leiddi í ljós að þeir hefðu orðið fyrir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×