Innlent

Lögmaður borgi sex milljónir

Hæstaréttarlögmaður í Reykjavík þarf að greiða verðbréfafyrirtæki 6 milljónir króna, auk dráttarvaxta og 400 þúsund króna í málskostnað, samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í gær. Málið snerist um tvo víxla sem lögmaðurinn sagði fyrirtækið hafa skuldbundið sig til að innheimta ekki nema að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Það hafði ekki verið gert og lagði hann fram skjal fyrir dómi því til sönnunar. Hann kvað málið dellukennt og kvaðst höfða endurkröfumál fyrir héraðsdómi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×