Innlent

Þungir dómar fyrir amfetamínsmygl

Tveir menn á þrítugs- og fertugsaldri voru í dag dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur í sex og sex og hálfs árs fangelsi fyrir tilraun til að smygla tæpum átta kílóum af amfetamíni til landsins frá Hollandi. Aðrir tveir einstaklingar sem að málinu komu fengu annars vegar hálfs árs fangelsi og fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi. Komu mennirnir efnunum fyrir í loftpressu sem flutt var til landsins með flutningaskipinu Dettifossi en tollverðir fundu það við leit þann 21. júlí í fyrra. Þá var fimmti maðurinn sem hugðist taka á móti efninu en gerði ekki sektaður um 40 þúsund krónur fyrir aðild sína að málinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×