Innlent

Fundu konu sem saknað hafði verið

Björgunarsveitarmenn úr Húnavatnssýslu fundu fyrir stundu konu sem leitað hefur verið í grennd við Blönduós frá því um miðja nótt. Hún hafði fallið ofan í djúpan skurð og meitt sig þannig að hún komst ekki upp úr honum aftur. Hún var köld og hrakin þegar hún fannst og er nú verið að flytja hana á sjúkrahúsið á Blönduósi til aðhlynningar. Konan brá sér út úr bæ sínum um miðnætti til að fá sér frískt loft en kom ekki aftur. Þegar eftirgrennslan heimilisfólksins bar ekki árangur hafði það samband við lögreglu og björgunarsveitarmenn sem hófu leit og var m.a. leitað úr lofti.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×