Innlent

Situr inni í eitt og hálft ár

Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur á þriðjudag var 33 ára gamall maður dæmdur í 18 mánaða fangelsi, áréttuð var ævilöng ökuréttarsvipting yfir honum og einnig gert upptækt bitvopn og tæplega eitt og hálft gramm af amfetamíni sem á honum fannst. Maðurinn reyndi í september í fyrra að ræna Péturspöbb á Höfðabakka með táragasbrúsa, hann ók bifreiðum réttindalaus og undir áhrifum amfetamíns og sljóvgandi lyfja við ýmis tækifæri og sveik út vörur hjá þremur fyrirækjum í borginni, einu þarf hann að greiða rúmlega 200.000 króna bætur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×