Innlent

Faldi kókaín í brókinni

23 ára gamall maður var dæmdur í 300.000 króna sekt í Héraðsdómi Reykjaness í gær, en hann var tekinn í nóvember í fyrra á skemmtistað með 0,6 grömm af amfetamíni; í janúarbyrjun ók hann bíl án réttinda og svo aftur fullur mánuði síðar. Við það tækifæri fann lögregla líka 2,83 grömm af kókaíni falin í nærbuxum mannsins. Maðurinn hefur tíu sinnum áður hlotið refsingu og rauf með þessu síðasta hátterni sínu skilorð 30 daga fangelsisdóms sem kveðinn var upp í nóvember 2003. Hann þarf því að sitja inni og sektin bætist við sem hegningarauki.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×