Innlent

Gæsluvarðhaldið framlengt

MYND/Vísir
Gæsluvarðhald yfir erlendu pari, sem er talið hafa flutt tvo bílaleigubíla úr landi með Norrænu og er auk þess grunað um fjárdrátt og skjalafals, hefur verið framlengt til 30. júní. Héraðsdómur Reykjavíkur framlengdi varðhaldið að kröfu lögreglunnar. Parið, sem var handtekið í Kaupmannahöfn, var úrskurðað í gæsluvarðhald vegna rannsóknarhagsmuna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×