Innlent

Konan fundin

Ung kona sem framdi tvö vopnuð rán um miðnæturbil í gærkvöldi er komin í leitirnar. Konan ógnaði fyrst afgreiðslustúlku á veitingahúsi American Style með kjöthnífi og heimtaði peninga. Skömmu síðar birtist hún í lyfjaversluninni Lyfju við Lágmúla og þá vopnuð notaðri sprautunál og heimtaði lyf sem vinsæl eru í eiturlyfjaheiminum. Lögreglan í Reykjavík hafði uppi á konunni um hádegisbilið. Þá hefur lögreglan einnig haft hendur í hári manns sem hótaði starfsmanni Lyfs og heilsu við Háaleitisbraut fyrir helgi. Hann notaðist líka við sprautunál og hafði eitthvað af lyfjum á brott með sér. Engin tengsl eru á milli hans og konunnar sem framdi ránin í nótt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×