Innlent

Enn óvíst um eldsupptök

Enn er allt á huldu um eldsupptök í bakhúsi við Grettisgötu sem stórskemmdist í eldi í nótt en rannsókn er haldið áfram. Lið frá öllum slökkviliðsstöðvum á höfuðborgarsvæðinu var kallað á vettvang eftir að mikill eldur gaus upp í húsinu, sem er tvílyft timburhús, laust fyrir klukkan eitt í nótt. Mikinn reyk lagði þá upp af húsinu þannig að fjölmargir tilkynntu um eldinn. Þegar slökkvilið kom á vettvang var húsið, sem er járnklætt timburhús, nær alelda og voru reykkafarar þegar sendir inn til að ganga úr skugga um hvort einhver væri þar inni. Svo reyndist ekki vera. Þá höfðu borist upplýsingar um að gaskútar kynnu að vera inni í húsinu en þeir fundust ekki. Veður var stillt þannig að eftir að slökkviliðið kom á vettvang voru nærliggjandi hús ekki í hættu. Greiðlega gekk að slá á eldinn en glæður voru víða um húsið og er það enn vaktað. Enginn býr í húsinu um þessar mundir þar sem verið var að gera það upp. Það er nú stórskemmt. Eldsupptök eru ókunn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×