Innlent

Sama konan í tveimur ránum?

Flest bendir til að ein og sama unga og ljóshærða konan hafi staðið að tveimur ránum á höfuðborgarsvæinu seint í gærkvöldi. Fyrst ógnaði hún starfsstúlku á American Style í Kópavogi með steikarhnífi á tólfta tímanum í gærkvöldi og heimtaði peninga. Afgreiðslustúlkan forðaði sér inn í eldhús og hringdi í lögreglu en þegar ránskonan gat ekki opnað peningakassann sjálf hvarf hún af vettvangi. Skömmu síðar ógnaði ung kona starfskonu Lyfju við Lágmúla með notaðri sprautunál og heimtaði af henni tiltekin lyf sem vinsæl eru í eiturlyfjaheiminum. Skelfingu lostin afgreiðslukonan forðaði sér inn á salerni og læsti að sér, af ótta við að nálin gæti borið með sér smit, og hringdi þaðan í lögreglu. Þegar hún kom á vettvang var árásarkonan á bak og burt með eitthvað af lyfjum. Myndir náðust af konunni í öryggismyndavél og bendir allt til að um sömu konu sé að ræða í báðum tilvikum. Hennar er nú leitað.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×