Innlent

Rotaðist í Brynjudal í Hvalfirði

Maður var fluttur á slysadeild Landspítala-Háskólasjúkrahúss eftir vinnuslys í Brynjudal í Hvalfirði nokkru fyrir hádegi í gær. Maðurinn fékk högg á höfuðið og missti við það meðvitund þegar hann var að losa slyskju sem rann til og skall á hann. Að sögn lögreglu í Reykjavík er talið að maðurinn hafi fengið heilahristing, en líðan hans er nokkuð eðlileg miðað við aðstæður. Vinnueftirlitið rannsakar tildrög slyssins. Auk lögreglu kom sjúkrabíll frá Akranesi sem flutti manninn áleiðis til Reykjavíkur, en sendur var sjúkrabíll þaðan á móti honum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×