Innlent

Ungs manns enn leitað

Lögregla leitar enn ungs manns sem komst undan í Heiðmörk á mánudagsmorguninn eftir að þar var kveikt í stolnum bíl. Lögreglan í Hafnarfirði var kölluð til og handsamaði hún á staðnum tvo 17 ára pilta og 15 ára gamla stúlku. Að loknum yfirheyrslum í Hafnarfirði var málið svo flutt til rannsóknardeildar lögreglu í Reykjavík. Þar á bæ telja menn sig vita hver lét sig hverfa í Heiðmerkurhrauninu og því bara tímaspursmál hvenær næst í skottið á honum. Auk stuldarins og íkveikjunnar skemmdu ungmennin nokkra bíla á bílastæði í Reykjavík.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×