Afstaða tekin til lífs og dauða 20. júní 2005 00:01
Fljótlega munu sérstök eyðublöð líta dagsins ljós sem gerir fólki kleift að taka ákvörðun um hvort lengja megi líf þess til dæmis með endurlífgun og öndunarvél, auk vilja fólks til líffæragjafar. Lífsskráin er gagnagrunnur sem mun halda utan um þessar upplýsingar og mun koma til með að auðvelda ættingjum erfiðara ákvarðanatökur. Mögulegt er að breyta skráningu sinni hvenær sem er, auk þess sem engin skylda er að skrá sig í Lífsskrána. Við skráningu gefst fólki kostur á að skrá sig sem líffæragjafa þó ekki krafist þess að fólk taki afstöðu í þeim málum við skráningu. Hingað til hefur farið lítið fyrir umræðunni um líffæragjöf en á hverju ári þarfnast um það bil tíu sjúklingar hér landi ígræðslu. Forsenda ígræðslu er að líffæri fáist frá nýlántum, þótt ekki sé unnt að nýta líffæri nema í litlum hluta dauðsfalla en hver líffæragjafi getur bjargað allt að sex mannslífum. Auk þess að geta skráð vilja sinn í Lífsskrána getur fólk nálgast sérstök líffæragjafakort í öllum helstu lyfjaverslunum, sem einfalt er að fylla út og koma fyrir í seðlaveski. Líffæragjöfum er þó bent á að ræða ákvörðunina við sína nánustu og gera þeim kunnugt um afstöðu sína.
Heilsa Mest lesið Jon Landau er látinn Bíó og sjónvarp Rauðhærðir í brennidepli á vel sóttum írskum dögum Lífið Sauð upp úr í stjörnufansi á golfmóti Coolbet Lífið Eins söguleg og skáldsaga getur orðið Lífið Laufey í banastuði í Reykjavík Lífið „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Setti sér markmið og hóf veitingarekstur átján ára Lífið Emmsjé Gauti laumaði sér á Landsmót fyrir tónlistarmyndband Lífið Alltaf sótt í orku og gleði í klæðaburði Tíska og hönnun „Þú gleymir fólki sem þú hefur elskað allt þitt líf“ Lífið Fleiri fréttir Fjöldamet á stærstu listasýningu í sögu Hornafjarðar „Hluti af heild sem við skiljum ekki“ Magnús Geir endurráðinn þjóðleikhússtjóri „Ef ég væri einmana myndi ég ganga í Sjálfstæðisflokkinn“ Myndaveisla: Níu líf of stórkostleg fyrir eftirsjá Þau eru tilnefnd til Ísnálarinnar í ár Hvað eigum við að kalla eiginmann forseta? Sjá meira