Sport

Dönsk handboltakona til Gróttu/KR

Danska handboltakonan Karen Smidt er gengin til liðs við Gróttu/KR í úrvalsdeild kvenna í handboltanum. Hún er 26 ára og kemur frá Viborg. Smidt kom til landsins um síðustu helgi og hefur skoðað aðstæður hjá liðinu síðan. Hún þykir mikill fengur fyrir Gróttu/KR enda Viborg eitt besta liðið í dönsku deildinni en kvenleikmenn þéna hærri laun en karlarnir í handboltanum þar í landi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×