Innlent

Sjö og hálft ár fyrir axarárás

Hæstiréttur staðfesti dóm yfir Birki Birgissyni sem hlaut sjö og hálfs árs fangelsisdóm fyrir tilraun til manndráps á veitingastaðnum A. Hansen í Hafnarfirði. Birkir réðst á mann með exi og sló hann í höfuðið. Hann var enn fremur dæmdur fyrir sjö líkamsárásir, brot á vopnalögum og umferðarlögum. Að auki rauf hann skilorð með afbrotum sínum, en hann hafði áður hlotið dóma vegna ofbeldisbrots og fíkniefnabrots. Birkir var enn fremur dæmdur til að greiða allan sakarkostnað málsins, 1,6 milljónir króna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×