Innlent

Dómur héraðsdóms staðfestur

Hæstiréttur staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Reykjaness frá janúar síðastliðnum um tæplega sjö ára fangelsi til handa Berki Birgissyni sem slasaði mann alvarlega þegar hann réðst á hann á veitingastaðnum A. Hansen í Hafnarfirði vopnaður öxi. Var dómnum áfrýjað þar sem dómsformaður í héraði var talinn hafa verið vanhæfur þegar hann óskaði eftir að Berkir gengist undir geðrannsókn. Féllst Hæstiréttur ekki á rök verjanda mannsins og stendur því fyrri dómur héraðsdóms upp á sex ára og sjö mánaða fangelsisdóm óhaggaður.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×