Erlent

18 látnir og 50 særðir

Að minnsta kosti átján manns létust og meira en fimmtíu særðust í sjálfsmorðsárás í borginni Kirkuk í morgun. Árásarmaðurinn gekk hlaðinn sprengiefni að fjölmennu markaðstorgi og sprengdi sig þar í loft upp. Ekkert lát er á sprengjuárásum uppreisnarmanna í Írak. Undanfarinn sólarhring hafa alls tuttugu og átta fallið í sex sjálfsmorðsárásum í borgunum Kirkuk, Bagdad, Tíkrit, Samarra og Bakúba. Í gærkvöldi voru lík þrettán Íraka flutt á sjúkrahús í Bagdad en mannanna sem um ræðir hafði verið saknað síðan á fimmtudaginn. Allt útlit er fyrir að ráðist hafi verið á bifreið þeirra, sem var hlaðin birgðum fyrir Bandaríkjaher, og mennirnir síðan ýmist skotnir í höfuðið eða hálshöggnir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×