Sport

Gokorian og Rebekka til Vals

Handknattleikskonan Alla Gokorian sem hefur gert það gott með ÍBV og hampaði Íslandsmeistaratitlinum með liðinu í fyrra er aftur gengin í raðir Vals. Auk Öllu hefur hin unga og stórefnilega Rebekka Skúladóttir samið við handknattleiksdeild Vals frá ÍR. Alla hóf feril sinn hér á landi með Val áður en hún fór til Gróttu/KR en þaðan lá leiðin til Eyja. Rebekka er systir hinna kunnu handboltasystra og landsliðskvenna Hrafnhildar, Drífu og Dagnýjar Skúladætra og hefur leikið með öllum yngri kvennalandsliðum Íslands. Þetta kom fram á heimasíðu Vals í kvöld.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×