Sport

Stórsigur á Hvít-Rússum

Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann öruggan 9 marka sigur á Hvít-Rússum, 33-24 í Kaplakrika í kvöld. Staðan í hálfleik var 18-12 fyrir Ísland. Þetta var fyrri leikur liðanna í umspili um laust sæti á Evrópumótinu sem fer fram í Sviss í janúar á næsta ári. Ólafur Stefánsson var markahæstur með 7 mörk en næstir komu þeir Guðjón Valur Sigurðsson, Jaliesky Garcia og Róbert Gunnarsson allir með 5 mörk hver. Liðin mætast að nýju í Minks næsta laugardag og ættu strákarnir okkar að vera nokkuð öruggir með sætið á Evrópumótinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×