Innlent

Of greitt ekið

Mikil umferð var í umdæmi lögreglunnar í Keflavík aðfaranótt sunnudags og talsvert um umferðarlagabrot. Tveir ökumenn voru kærðir fyrir meinta ölvun við akstur og fjórir voru kærðir fyrir of hraðan akstur sömu nótt. Tveir voru teknir á Reykjanesbraut, sá sem hraðar ók mældist á 187 kílómetra hraða þar sem leyfður hámarkshraði er níutíu kílómetrar, og tveir á Njarðarbraut og mældist hraði þeirra 71 kílómetri þar sem leyfður hámarkshraði er fimmtíu kílómetrar á klukkustund. Annar þeirra var einnig með útrunnin ökuréttindi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×