Innlent

Á 187 km hraða á Reykjanesi

Nokkur erill var hjá lögreglunni í Reykjanesbæ í nótt. Fjórir voru kærðir fyrir hraðakstur. Sá sem hraðast ók var á 187 kílómetra hraða. Tvívegis var lögreglan kölluð að skemmtistaðnum Traffic við Hafnargötu. Í annað skiptið var það vegna stúlku sem sparkaði í bíl þar fyrir utan eftir að hafa verið vísað út. Þá var tilkynnt um nakinn mann með sýniþörf á Aðalgötu en hann vildi ekki sýna sig lögreglu og var horfinn á braut þegar hún kom á staðinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×