Innlent

Veifaði skammbyssu í Bústaðahverfi

Maður, sem veifaði loftskammbyssu utandyra í Bústaðahverfinu, var handtekinn á heimili móður sinnar og færður í fangageymslur í dag. Maður á fimmtugsaldri var handtekinn í íbúð í Bústaðarhverfi um klukkan þrjú í dag. Lögreglan kom á staðinn eftir að tilkynnt hafði verið um að maðurinn hefði veifað byssu utandyra og ógnað tveimur. Þegar lögreglan kom var enginn sjánanlegur utandyra en maðurinn var handtekinn í íbúð móður sinnar í fjölbýlishúsi þar við og veitti hann ekki mótspyrnu við handtökuna. Maðurinn vísaði á loftskammbyssu sem hann hafði falið inn í skáp á heimili móður sinnar. Sjálfur hefur maðurinn einhvers konar aðsetur í bílskúr fyrir aftan fjölbýlishúsið en skúrinn á móðir hans. Ekki er vitað hvað manninum gekk til með framferði sínu. Maðurinn hefur áður komið við sögu lögreglu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×