Innlent

Sextugur sýknaður af hasssmygli

Sextugur karl var í Héraðsdómi Reykjaness í gær sýknaður af ákæru um að hafa reynt að smygla til landsins 304 grömmum af hassi. Efnið fannst í tösku mannsins við gegnumlýsingu á Kastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn. Hann neitaði sakargiftum og taldi hassinu hafa verið komið fyrir án hans vitneskju. Hann sagði það rangt sem fram kæmi í danskri lögregluskýrslu að hann hefði kannast við efnið og sagst vera að flytja það inn fyrir ótilgreindan vin. Maðurinn skrifaði ekki undir skýrsluna. Lögreglumenn rannsökuðu málið gáfu ekki skýrslu fyrir dómi og skýrslan frá Kaupmannahöfn var eina sönnunargagnið. Maðurinn hefur 29 sinnum hlotið dóma, síðast árið 2002.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×