Innlent

Velti stolnum bíl með þýfi

Á sjötta tímanum í gærmorgun valt lítil fólksbifreið í Önundarfirði. Ökumaðurinn var einn í bifreiðinni. Hann var fluttur á sjúkrahús en reyndist ekki alvarlega slasaður. Hann er grunaður um að hafa tekið bifreiðina ófrjálsri hendi og ekið henni undir áhrifum lyfja. Hann reyndist vera með útrunnin ökuréttindi. Í bifreiðinni fannst DVD-spilari sem ökumaðurinn er grunaður um að hafa stolið, en fyrr um nóttina var svipuðum spilara stolið í innbroti í bát í Ísafjarðarhöfn. Lögreglan á Ísafirði telur málið vera upplýst.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×