Innlent

Biskup hafnar ásökunum um vanhæfi

Karl Sigurbjörnsson biskup hafnar alfarið alvarlegum ásökunum lögmanns Hans Markúsar Hafsteinssonar, sóknarprests í Garðasókn, sem lýst hefur biskup vanhæfan til að fjalla um deilu prestins og hluta sóknarnefndar. Í yfirlýsingu frá Biskupsstofu, þar sem þessu er hafnað, segir enn fremur að Biskupsstofa tjái sig ekki frekar um innihald bréfs lögmannsins til biskups á meðan málið er til meðferðar hjá áfrýjunarnefnd þjóðkirkjunnar. Sem kunnugt er vill biskup færa séra Hans Markús til í starfi vegna deilna í sókninni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×