Innlent

Velti bíl utan við Flateyri

Ölvaður ökumaður á stolnum bíl, að því að talið er, er nú á sjúkrahúsinu á Ísafirði eftir að hann velti bílnum utan við Flateyri á sjötta tímanum í morgun. Maðurinn er til rannsóknar á sjúkrahúsinu en ekki er talið að hann sé alvarlega slasaður. Bíllinn er hins vegar töluvert skemmdur. Þá var lögreglunni á Selfossi tilkynnt um bíl á hvolfi utan við Villingaholtsveg. Þegar lögreglan kom á staðinn var bíllinn mannlaus og engin ummerki um meiðsl á fólki. Að sögn lögreglunnar býr eigandinn á þessum slóðum en ekki hefur tekist að ná sambandi við hann. Bíllinn er gjörónýtur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×