Innlent

Bílþjófnaður og skemmdarverk

Tveir piltar eru nú í haldi lögreglunnar í Reykjavík vegna bílþjófnaðar og skemmdarverka. Þeir voru handteknir á fjórða tímanum í nótt eftir að þeir höfðu brotist inn í og skemmt nokkra bíla í Höfðahverfi og í framhaldinu stolið einum og ekið honum í sandgryfju Björgunar þar skammt frá. Þeir festu bílinn þar og voru handteknir á staðnum. Bíllinn er nokkuð skemmdur. Annar piltanna er sextán ára gamall og mun Barnaverndarnefnd einnig hafa afskipti af hans máli. Hinn er tuttugu og eins árs. Piltarnir verða yfirheyrðir með morgninum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×