Sport

Ísland yfir gegn Svíum

Íslenska karlalandsliðið í handbolta er fjórum mörkum yfir í hálfleik gegn Svíum, 16:12, í síðari vináttulandsleik þjóðanna en leikurinn fer fram í KA-heimilinu á Akureyri. Varnarleikurinn hefur verið frábær og Birkir Ívar Guðmundsson markvörður búinn að verja 8 skot. Róbert Gunnarsson er markahæstur með 5 mörk, Ólafur Stefánsson 3 mörk, Arnór Atlason og Logi Geirsson með tvö mörk hvor og þeir Alexander Petersson, Jaliesky Garcia og Sigfús Sigurðsson hafa gert eitt mark hver.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×