Skoðun

Vex en tapar

Vex en tapar Þegar spjallað er við forstöðumenn ferðaþjónustu á Íslandi er ekki að heyra að greinin eigi í vanda. Hjá Samtökum ferðaþjónustunnar er línan sú að greinin sé í vexti í öllum flokkum sem máli skipta; sífellt fleiri ferðamenn heimsæki landið, gjaldeyristekjur aukist ár frá ári og hlutdeild ferðaþjónustu í landsframleiðslu hækki. Ferðamálaráð talar um markaðssetningu erlendis og áhuga erlendra blaðamanna á að heimsækja landið. Með öðrum orðum: ímyndin er sú að Ísland sé hipp og kúl. Þegar rýnt er í rekstrartölur fyrirtækja í ferðaþjónustu blasir hins vegar önnur sýn við. Reksturinn stendur óvíða undir sér eða, eins og Vilhjálmur Bjarnason hjá Hagstofunni orðar það; arðsemi er bannorð í bransanum. Undirstöðugreinarnar þrjár; flug-, hótel og veitingahúsarekstur standa allar völtum fótum. Hvalaskoðunarferðirnar, sem eiga að vera vaxtabroddurinn í bransanum, skiluðu 87 milljóna króna tapi á árunum 1999 til 2002 og svona mætti áfram telja. En hvernig má þetta vera? Af hverju er staðan eins og hún er? Jú, aðganga að greininni er of auðveld, svo haldið sé áfram að vitna í Vilhjálm. Hver sem er getur hafið rekstur án þess að afkoma eða markaðssetning sé tryggð, fólk fær jafnvel til þess ríkisstyrk. Síðast þegar fréttist átti Byggðastofnun hlut í tíu gistiheimilum á landsbyggðinni. Í fjárlögum ársins 2004 var völdum fyrirtækjum innan ferðaþjónustunnar úthlutað 320 milljónum króna til kaupa á auglýsingum í erlendum fjölmiðlum. Samvinnuverkefni í markaðsmálum segja Samtök ferðaþjónustunnar, ríkisstyrkur segja aðrir. Kjarni málsins er þessi: Ekkert breytist fyrr en atvinnugreinin horfist í augu við vandann.  Ef haldið verður áfram að kalla ríkisstyrki samvinnuverkefni í markaðsmálum verður ástandið nákvæmlega eins eftir 20 ár, sama hvort fjöldi ferðamanna tvöfaldast, gjaldeyristekjur þrefaldast og hlutdeild ferðaþjónustu í landsframleiðslu fjórfaldist. Aðeins Albanía fær til sín færri ferðamenn meðal Evrópuþjóða. Einhverjir kynnu að minnast á höfðatölu, en má þá ekki alveg eins tala um fjölda ferðamanna á ferkílómetra? Jón Skaftason - jsk@frettabladid.is



Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×