Sport

Gæti orðið erfitt að slá Einar út

Það vakti athygli að þegar íslenska karlalandsliðið í handbolta vann sinn fyrsta sigur á fullskipuðu liði Svía í tæp sautján ár gerði liðið það án Ólafs Stefánssonar, sem sat uppi í stúku og horfði á félaga sína eiga góðan leik og yfirbuga gömlu Svíagrýluna.  Ólafur var ánægður með leikinn og það að liðið skyldi spjara sig án hans. „Það var tilgangurinn," sagði Ólafur af sínu þjóðþekkta lítillæti en hann hefur leikið ellefu landsleiki gegn Svíum á ferlinum og hefur Ísland tapað þeim öllum. „Kollegi minn, Einar Holmgeirsson, spilaði frábærlega og það gæti orðið erfitt fyrir mig að vinna aftur mína stöðu. 6:0 vörnin í seinni hálfleik var líka góð og mér leist vel á það og eins það að spila með tvo línumenn. Sóknarleikurinn var líka fínn og þetta gekk mjög vel," sagði Ólafur þegar Fréttablaðið hitti á hann eftir leik en Einar Hólmgeirsson átti stórleik í hægri skyttunni og skoraði 9 mörk úr aðeins 12 skotum. Einar hefur skorað 33 mörk og nýtt 63% skota sinna í fjórum síðustu leikjum án Ólafs og það er því spennandi tvíeyki sem landsliðsþjálfarinn Viggó Sigurðsson getur teflt fram á næstunni. Ólafur Stefánsson hefur ekki spilað með landsliðinu síðan á Heimsmeistaramótinu í Túnis en hann kom ekki strax til móts við landsliðið að þessu sinni þar sem hann tók þátt í kveðjuleik fyrir Talant Dujshebaev um helgina. ÓIafur er klár í næstu leiki og spilar með í seinni leiknum gegn Svíum á Akureyri í kvöld. „Skrokkurinn er í fínu standi og ég verð með í leiknum fyrir norðan enda vona ég að það verði ekki fleiri setur uppi í stúku hjá mér," sagði Ólafur en leikurinn fer fram í KA-húsinu og hefst klukkan 20.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×