Innlent

Fangelsuð fyrir búðarhnupl

Kona á fimmtugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmd í níutíu daga fangelsi fyrir þjófnað. Konan stal vörum, af öllu mögulegu tagi, fyrir rúmar fjörtíu þúsund krónur, úr verslun í Kringlunni í mars í fyrra. Ákærða rauf skilorð með brotinu, en hún hafði í þrígang fengið dóma fyrir þjófnaði á einu ári. Í ljósi þess að ákærða hefur tvívegis áður rofið skilorð var dómurinn ekki hafður skilorðsbundinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×