Innlent

Þrjú innbrot sömu nóttina

Maður á fertugsaldri var í gær dæmdur í þrjátíu daga fangelsi fyrir þrjá þjófnaði og þrjár tilraunir til innbrots. Öll brotin voru framin aðfaranótt 27. maí á bifreiðastæði við Hátún tíu og tólf. Innbrotin voru öll í bíla og tókst hinum dæmda að stela munum að verðmæti yfir fimmtíu þúsund króna. Ákærði var einnig dæmdur til þess að greiða allan sakakostnað. Hann játaði brot sín fyrir rétti. Fullnustu refsivistarinnar verður frestað haldi hinn dæmdi almennt skilorð í tvö ár.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×