Innlent

Ók utan í vegg í göngum

Vörubifreið var ekið utan í vegg í Hvalfjarðargöngum í gærkvöldi og voru göngin lokuð um stund vegna þessa. Bílstjórinn hlaut minni háttar meiðsl og var fluttur á sjúkrahúsið á Akranesi til aðhlynningar. Grunur leikur á að bílnum hafi verið stolið sunnan megin við göngin. Óhappið varð um klukkan níu en búið var að opna göngin að nýju rúmri klukkustund síðar og fór umferð því um Hvalfjörðinn á meðan. Ekki urðu miklar skemmdir á göngunum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×