Innlent

Erill hjá lögreglu í Reykjanesbæ

Lögreglumenn í Reykjanesbæ höfðu nokkuð að gera í gærkvöld og nótt þar sem töluvert var um slagsmál og ryskingar við skemmtistaðinn Traffic í Hafnargötu í Keflavík. Þá var maður laminn fyrir utan Vitann í Sandgerði með þeim afleiðingum að nokkrar tennur í honum brotnuðu, hann fékk skurði í andliti og þá kvartaði hann undan eymslum í brjóstkassa.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×