Innlent

Rólegt hjá lögreglunni í borginni

Mikill mannfjöldi var saman kominn í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi og í nótt og virðist sem fólkið hafi að mestu leyti skemmt sér í sátt og samlyndi. Að sögn lögreglunnar er sárafátt sem stendur upp úr eftir nóttina, tvö minni háttar fíkniefnamál en fátt annað frásagnarvert. Klukkan sjö í morgun þegar vaktaskipti urðu á lögreglustöðinni var enn töluverður fjöldi á ferli í miðbænum. Svipaða sögu segja lögreglumenn annars staðar af landinu þar sem margir héldu upp á sjómannadagshelgina.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×