Innlent

Fíkniefnafundur á Raufarhöfn

Sjö voru handteknir eftir að talsvert magn fíkniefna fannst við húsleit lögreglu á Raufarhöfn í gærmorgun. Var um að ræða tæp 50 grömm af hvítum efnum og um 50 töflur sem líkur þóttu á að væru e-töflur en það hafði þó ekki verið staðfest. Yfirheyrslur fóru fram yfir fólkinu fram eftir degi í gær og verða þeim líklega birtar ákærur innan tíðar. Talsverður fjöldi fólks var í húsi því er lögreglan gerði húsleit í en veisla hafði þá staðið þar yfir alla nóttina.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×