Innlent

Sjö handteknir vegna fíkniefnamáls

Sjö hafa verið handteknir á Raufarhöfn í dag vegna fíkniefnamáls. Við aðgerðina haldlagði lögregla nokkuð magn meintra fíkniefna, svo og tóla og tækja til fíkniefnaneyslu. Um það bil 25-30 grömm af hvítum efnum voru haldlögð og um 50 töflur sem líklegt þykir að séu e-töflur. Við aðgerðina naut lögreglan í Þingeyjarsýslum aðstoðar lögreglunnar á Akureyri sem m.a. lagði til fíkniefnahund.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×