Innlent

Fjögur fíkniefnamál á sólarhring

Kópavogslögreglan hefur komið upp um fjögur fíkniefnamál síðastliðinn sólarhring og hafa níu manns verið ákærðir. Grunur leikur á fíkniefnasölu í einu málanna. Upp komst um málin við reglubundið eftirlit á götum bæjarins en málin teljast öll upplýst. Þá stöðvaði Kópavogslögreglan ökumann á 129 kílómetra hrða á Reykjanesbraut í nótt þar sem leyfilegur hámarkshraði er sjötíu kílómetrar. Sá má búast við að missa ökuskírteini sitt sem og töluvert hárri sekt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×