Sport

Snorri Steinn semur við Minden

Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsmaður í handknattleik, hefur náð munnlegu samkomulagi við þýska liðið Minden og mun líklegast skrifa undir tveggja ára saming við liðið á allra næstu dögum. Mörg lið sýndu honum áhuga eftir að ljóst varð að Grosswallstadt ætlaði ekki að framlengja samning hans en hans vilji var að vera áfram í Þýskalandi. Topplið í Þýskalandi sýndi honum áhuga en fékk svo annan mann í staðinn og því varð ekkert af því að hann færi þangað. Minden var í vandræðum í þýsku deildinni á nýliðnu tímabili og endaði í 16. sæti af 18 liðum, nú á samt að rétta úr kútnum og má reikna með að fleiri leikmenn muni ganga til liðs við félagið á næstu dögum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×