Innlent

Mildaði dóm yfir bankaræningja

MYND/E.Ól
Hæstiréttur mildaði í dag dóm yfir manni sem framdi vopnað rán í útbúi Búnaðarbankans við Vesturgötu í nóvember árið 2003. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður dæmt manninn í tveggja ára fangelsi en Hæstiréttur lækkaði refsinguna í fimmtán mánaða fangelsi. Ránið framdi maðurinn í slagtogi við annan mann sem ók flóttabílnum. Sjálfur fór maðurinn hettuklæddur inn í bankann og ógnaði tveimur gjaldkerum með hnífi og hafði á brott með sér 430 þúsund krónur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×