Sport

Ólafur kemur á sunnudag

Ólafur Stefánsson, leikmaður íslenska landsliðsins í handbolta, mun koma til móts við félaga sína í liðinu á sunnudag vegna kveðjuleiks Talant Dujshebaev við heimsliðið á laugardag. Fyrirhugað var að Ólafur kæmi til landsins á þriðjudag en mikil pressa var frá forráðamönnum Ciudad Real að Ólafur fengi að spila þennan leik. Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HSÍ, staðfesti það við Fréttablaðið í gær að sambandið hefði ákveðið að gefa eftir í baráttunni við Ciudad. „Öll önnur sambönd voru búin að gefa grænt ljós á sína leikmenn um að spila þennan leik svo að það hefði verið hálfeinkennilegt ef við hefðum lagt okkur alla fram í að láta Ólaf ekki spila," segir Einar. Íslenska landsliðið leikur tvo vináttuleiki við Svía þann 6. og 8. júní næstkomandi en Ólafur mun koma heim sunnudaginn 5. júní í staðinn. Hann mun því geta tekið þátt í leikjunum gegn Svíum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×