Innlent

Lögregla lýsir eftir manni

Lögregla í Reykjavík lýsir eftir Bjarna Jónssyni, 29 ára. Bjarni er 194 sm á hæð, er grannvaxinn með ljósskolleitt stutt hár, klæddur dökkum gallabuxum, bláum jakka, dökkri peysu og er í dökkum skóm. Bíll Bjarna fannst seinni partinn í gær í Melasveit við Skarðsheiði. Talið er að til hans hafi sést við bílinn síðastliðið mánudagskvöld, en þá var Bjarni klæddur bláum Kraftgalla. Leit stendur yfir með þyrlu og fjölda björgunarmanna. Þeir sem telja sig geta gefið upplýsingar um ferðir Bjarna eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í Borgarnesi eða höfuðborgarsvæðinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×