Innlent

Eldur í húsi að Mánagötu

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út að Mánagötu í Reykjavík á fjórða tímanum vegna elds í húsi við götuna. Kona með ungabarn var á heimilinu en þau komust bæði út heil á húfi. Að sögn varðstjóra hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var töluverður eldur í eldhúsi hússins en greiðlega gekk að slökkva eldinn. Miklar reykskemmdir urðu á íbúðinni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×