Innlent

Sjö sjóræningjar að veiðum

Sjö svokölluð sjóræningjaskip sáust á veiðum á karfaslóð á Reykjaneshrygg í gær þegar flugvél Landhelgisgæslunnar flaug þar yfir. Sjóræningjaskipin eru togarar sem ekki hafa leyfi til veiða á fiskveiðistjórnunarsvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar. Áhöfn TF-SYN sá alls sextíu erlenda úthafskarfatogara á veiðum við mörk lögsögunnar suðvestur af Reykjanesi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×