Innlent

Kynferðisbrotsdómur staðfestur

Rúmlega tvítugur maður var í Hæstarétti dæmdur í eins árs fangelsi fyrir að hafa haft kynmök við tólf ára gamla stúlku á heimili sínu á Akureyri árið 2002. Maðurinn hélt því fram að hann hefði ekki átt kynmök við stúlkuna sem aftur á móti sagði að hann hefði nauðgað sér. Saga stúlkunnar var studdur framburðum vitna en þó þótti ekki sannað að kynmökin hefðu verið þvinguð. Engu að síður er ólöglegt að hafa kynmök við börn yngri en 14 ára og skiptir engum sköpum hvort samþykki hafi verið fyrir hendi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×