Innlent

Þrír handteknir á Selfossi

Þrír menn voru handteknir á Selfossi á fimmtudaginn eftir að nokkurt magn af amfetamíni, kannabisefnum og -plöntum fannst við húsleit lögreglunnar. Grunsemdir lögreglu höfðu vaknað um að húsráðandinn seldi fíkniefni og eftir að hafa fundið smáræði af kannabisefnum á gesti sem var að koma úr húsinu var gerð húsleit hjá gestgjafanum. Þar var annar gestur sem var einnig handtekinn en sleppt fljótlega aftur og er hann ekki talinn tengjast málinu. Málið telst nú upplýst og bíða mennirnir tveir ákæru eða sekta að sögn lögreglunar á Selfossi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×