Sport

Stórleikur Snorra gegn Wetzlar

Snorri Steinn Guðjónsson átti sannkallaðan stórleik fyrir Grosswallstadt í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í gær. Hann skoraði tólf mörk og fiskaði fjögur vítaköst þegar Grosswallstadt lagði Wetzlar að velli, 36-34. Einar Hólmgeirsson skoraði fimm mörk fyrir Grosswallstadt. Róbert Sighvatsson var markahæstur hjá Wetzlar með sex mörk. Essen tapaði fyrir Kiel 32-25. Guðjón Valur Sigurðsson var í miklu stuði hjá Essen og skoraði níu mörk. Logi Geirsson skoraði þrjú mörk fyrir Lemgo sem vann Minden 30-29. Magdeburg tapaði fyrir Hamborg 28-26, Arnór Atlason skoraði fjögur mörk og Sigfús Sigurðsson þrjú. Þá skoraði Alexander Pettersson fjögur mörk fyrir Düsseldorf þegar liðið tapaði 31-26 fyrir Flensborg.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×