Innlent

Heppinn að lifa af

Ökumaður velti bifreið sinni á Borgarhálsi í Hrútafirði í fyrrinótt. Hann var sendur talsvert lemstraður með sjúkrabíl á Heilsugæslustöðina á Hvammstanga. Bíllinn er gjörónýtur en ökumaður má teljast afar heppinn að hafa sloppið lifandi, að sögn lögreglunnar á Hólmavík. Lögreglumönnum leist ekki á blikuna þegar þeir komu á vettvang þar sem þak bifreiðarinnar var samanpressað fyrir ofan ökumann. Einnig segir lögreglan að ekki hefði þurft að spyrja að leikslokum ef ökumaður hefði ekki verið í bílbelti.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×