Innlent

Víða ölvaðir ökumenn

Margir keyrðu fullir um helgina að sögn lögreglu víða um land. Tólf ökumenn voru stöðvaðir á höfuðborgarsvæðinu í fyrrinótt. Lögreglan í Keflavík stöðvaði ungan ökumann alldrukkinn undir stýri í fyrrinótt og hafði lögreglumaður orð á því að stimpillinn á ökuskírteini hans hefði varla verið þornaður, en pilturinn fékk skírteinið nokkrum dögum áður. Skömmu síðar stöðvaði lögreglan þar í bæ annan ökumann í svipuðu ástandi. Á Norðurlandi hafði lögreglan afskipti af sex ökumönnum vegna ölvunaraksturs og á Austfjörðum tók lögreglan svo tvo stúta undir stýri..



Fleiri fréttir

Sjá meira


×